Fréttir

Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna

Haustfundur SFA framundan

Kæru félagar.
Nú fer að líða að haustfundinum sem haldinn verður í Menningarhúsinu Gerðubergi föstudaginn 25. september kl. 13:30-15:30.
Dagskráin er eftirfarandi:
Gylfi J. Gylfason verkefnisstjóri hjá Menntamálastofnun mun koma og kynna þjóðarsáttmála um læsi og ræða um okkar hlutverk og möguleika til að leggja því lið.
Stjórnin segir frá nýrri heimasíðu sem er í smíðum.
“Bókasöfnin sem vettvangur samfélagsumræðu”. Þar deila þeir reynslu sem hafa og við höfum væntanlega mörg eitthvað fram að færa í þá umræðu.
Menningarhúsið Gerðuberg er góður rammi utan um þennan fund. Spennandi starfsemi þess húss undanfarin ár er til fyrirmyndar og við hvetjum ykkur öll til að mæta í Gerðuberg. Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn SFA.

SFA Merkið

Merki og Barmmerki

Á vorfundi forstöðumanna almenningsbókasafna 1993 sem haldinn var í Vestmannaeyjum var skipaður starfshópur um merki fyrir íslensk alemnningsbókasöfn. Starfshópurinn kynnti niðurstöður sinar á haustfundi í Grindavík sama ár og í framhaldi af því var ákveðið að láta teikna nýtt merki fyrir söfnin. Einnig var ákveðið að vinna samhliða að vegskilti í samvinnu við Vegagerðina. Það var svo á Landsfundi bókavarða í Munaðarnesi í september 1995 að merkið var kynnt og samþykkt. Jón Ágúst Pálmason hannaði það og lýtur vegskiltið reglum Vegagerðarinnar um útlit en litirnir í litaútgáfu merksins eru táknrænir fyrir hina gömlu og virðulegu leðurinnbundnu bók til lífs- og litagleði ungviðisins.

Öllum bókasöfnum á Íslandi er heimilt að nota merkið.

Um notkun vegskiltisins gilda reglur Vegagerðarinnar.

Barmmerki


Barmmerki með merki almenningsbókasafna er m.a. hægt að panta hjá Skilti og merkingar, Efstaleiti 28, 230 Reykjanesbær.
Borgar Ólafsson s. 421-1225, fax 421-4425, netfang [email protected]