Dagskrárdrög Þýskalandsferðar

Nú eru dagskrárdrög Þýskalandsferðar komin og má sjá þau hér. Dagskrárdrögin eru birt með fyrirvara um breytingar. Á næstu dögum/vikum munu nánari upplýsingar um tímasetningar, ferðaáætlun, greiðslur, styrki og fleira birtast. Dagskrárdrög – birt með fyrirvara um breytingar Þriðjudagur 21. mars13.30 Koma á Hotel Leonardo Berlin Mitte.15.00 Hella Klauser frá þýsku bókasafnasamtökunum flytur okkur erind sem hún nefnir: ‚Library structures and present issues in Germany‘. Frágengið en staðsetning ófundin. Í framhaldinu er ætlunin að halda aðalfund SFA. Miðvikudagur 22. mars10.00 "Louca & Oberholz GbR; Florian Schwarz fylgja okkur um bygginguna „Co-Working space “Rosenthaler Straße 72a. Sýnisferð í 2 hópum og svo sameiginlegur fyrirlestur: “Co-Working and libraries” (staðfest).14.00 Frú Czerlinski, Stadtbibliothek Ingeborg-Drewitz : “Ten years of a library in a shopping center” (staðfest). Fimmtudagur 23. mars10.00 Birgit Schultz, Stadtbibliothek Philipp-Schäffer (staðfest).13.00…

Continue ReadingDagskrárdrög Þýskalandsferðar

Aðalfundur 2016

Aðalfundur SFA verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl 2016 kl. 13:30 á Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum. Dagskrá fundar: • Skýrsla formanns• Reikningsuppgjör sl. árs• Lagabreytingar• Kosning í stjórn• Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs• Fjárhagsáætlun og ákvörðun um félagsgjöld• Önnur mál Kveðja stjórn SFA.

Continue ReadingAðalfundur 2016

Jólakveðja 2015

Stjórn SFA óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra, sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum kærlega ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.Með kærri jólakveðju,Stjórn SFA

Continue ReadingJólakveðja 2015

Haustfundur SFA framundan

Kæru félagar.Nú fer að líða að haustfundinum sem haldinn verður í Menningarhúsinu Gerðubergi föstudaginn 25. september kl. 13:30-15:30.Dagskráin er eftirfarandi:Gylfi J. Gylfason verkefnisstjóri hjá Menntamálastofnun mun koma og kynna þjóðarsáttmála um læsi og ræða um okkar hlutverk og möguleika til að leggja því lið.Stjórnin segir frá nýrri heimasíðu sem er í smíðum."Bókasöfnin sem vettvangur samfélagsumræðu". Þar deila þeir reynslu sem hafa og við höfum væntanlega mörg eitthvað fram að færa í þá umræðu.Menningarhúsið Gerðuberg er góður rammi utan um þennan fund. Spennandi starfsemi þess húss undanfarin ár er til fyrirmyndar og við hvetjum ykkur öll til að mæta í Gerðuberg. Hlökkum til að sjá ykkur.Stjórn SFA.

Continue ReadingHaustfundur SFA framundan

Ný vefsíða SFA í smíðum

Stjórn SFA hefur falið vefhönnunarfyrirtækinu Núna ehf að hanna nýja vefsíðu fyrir Samtökin. Verið er að vinna í að flytja efni af gömlu síðunum yfir á þá nýju. Vefsíðan er hönnuð með það að markmiði að opnast auðveldlega í simum og öðrum snjalltækjum. Á haustfundi SFA sem haldinn verður föstudaginn 25. september verður vefsíðan kynnt félagsmönnum.

Continue ReadingNý vefsíða SFA í smíðum