Köku- og persónuverndar stefna SFA

Það er stefna SFA að nota kökur sparlega og upplýsingum er ekki miðlað til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu, allar upplýsingar eru ópersónugreinanlegar og tímabundnar. Þegar vefur SFA er notaður verða til upplýsingar um heimsóknina. Þær upplýsingar eru einungis notaðar til þess að bæta þjónustu við notendur. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Continue ReadingKöku- og persónuverndar stefna SFA

Fundargerðir stjórnar

Fundargerðir stjórnar 2018-2020 Stjórnarfundir 2018-2020 Fundargerðir fyrri stjórna Stjórnarfundir 2016-2018 Stjórnarfundir 2014-2016 Stjórnarfundir 2009 - 2011 Stjórnarfundir 2007 Stjórnarfundir 2005 - 2007 Stjórnarfundir 2003 - 2004 Stjórnarfundir 2002 - 2003

Continue ReadingFundargerðir stjórnar

Stjórn og nefndir

  Til að komast í samband við starfandi stjórn félagsins má senda tölvupóst á netfangið: [email protected]   Stjórn 2024 - 2026 Á vorfundi SFA í Borgarnesi, apríl sl. voru eftirfarandi forstöðumenn kjörnir í nýja stjórn, þau eiga eftir að skipta með sér verkum innan stjórnar: Edda B. Kristmundsdóttir, Bókasafn Ísafjarðar, Sævar Ingi Jónsson, Héraðsbókasafn Borgarbyggðar, Ingibjörg Ösp Júlíusdóttir, Bókasafn Akraness, Alda Hrannarsdóttir, Bókasafn Patreksfjarðar, Nanna Guðmundsdóttir, Amtsbókasafnið á Stykkishólmi Stjórn 2022 - 2024 Formaður:Björk Hólm Þorsteinsdóttir, Bókasafn DalvíkurbyggðarGjaldkeri:Þórdís Friðbjörnsdóttir, Héraðsbókasafn Skagfirðinga / Kristín Sigurrós Einarsdóttir, Héraðsbókasafn SkagfirðingaRitari: Katharina Schneider, Héraðsbókasafn A-HúnMeðstjórnendur:Hólmkell Hreinsson, Amtsbókasafnið á Akureyri Hrönn Hafþórsdóttir, Bókasafn Fjallabyggðar  Stjórn 2020 - 2022 Formaður:Björk Hólm Þorsteinsdóttir, Bókasafn DalvíkurbyggðarGjaldkeri:Þórdís Friðbjörnsdóttir, Héraðsbókasafn Skagfirðinga Ritari: Katharina Schneider, Héraðsbókasafn A-HúnMeðstjórnendur:Hólmkell Hreinsson, Amtsbókasafnið á Akureyri Hrönn Hafþórsdóttir, Bókasafn Fjallabyggðar  Stjórn 2018-2020 Formaður:Andrea Ævarsdóttir, Bókasafni GrindavíkurGjaldkeri:Stefanía Gunnarsdóttir, Bókasafni ReykjanesbæjarMeðstjórnendur:Björk…

Continue ReadingStjórn og nefndir

Lög félagsins

I. kafli.Nafn og varnarþing. 1. gr.Nafn félagsins er Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna (SFA). Á ensku Organization of Public Library Directors in Iceland. 2.gr.Heimili félagsins og varnarþing er hjá gjaldkera hverju sinni. II. kafli.Markmið og tilgangur. 3.gr.Markmið félagsins eru: a) að vera samstarfsvettvangur forstöðumanna almenningsbókasafna á Íslandi.b) að koma fram fyrir hönd félagsins í málefnum sem varða hagsmuni almenningsbókasafna.c) að fjalla um þau mál sem snerta starfssvið almenningsbókasafna.d) að fylgjast með lagasetningum og nýjungum á sviði almennings-bókasafna.e) að standa fyrir fræðslu, námskeiðum og ráðstefnum um málefni almenningsbókasafna.f) að stuðla að opinberri umræðu um almenningsbókasöfn.g) að vinna að þróun og eflingu íslenskra almenningsbókasafna.h) að eiga samstarf við félög forstöðumanna almenningsbókasafna erlendis. III. kafli.Aðild og úrsögn. 4. gr.Félagar geta þeir orðið sem veita almenningsbókasöfnum forstöðu og starfa hjá sveitarfélagi sem hefur skipulagða bókasafnsþjónustu. Auk…

Continue ReadingLög félagsins

Skýrslur

Skýrsla stjórnar 2017-2018 Skýrsla stjórnar 2016-2017 Skýrsla stjórnar 2015-2016 Skýrsla stjórnar 2014-2015 Skýrsla stjórnar 2013-2014 Skýrsla stjórnar 2010 - 2011 Bókasafnsdagurinn 2011. Skýrsla fulltrúa SFA í undirbúningsnefnd. Skýrsla stjórnar 2009 - 2010 Skýrsla stjórnar 2007

Continue ReadingSkýrslur

Stefna um notkun á kökum

Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)? Kökur eru litlar textaskrár sem er komið fyrir á tölvunni eða snjalltækinu þínu þegar þú heimsækir vefsíðu. Þegar þú heimsækir vefsíðuna næst í sama tæki man síðan eftir þér og hvernig þú notaðir hana. Kökur eru notaðar til þess að bæta virkni vefsíðunnar, greina umferð um hana og bæta þjónustu við notendur. Einnig til að verjast árásum tölvuþrjóta. Flestar kökur varðveitast aðeins í stuttan tíma en aðrar geta varðveist lengur. Valkvæðar kökur safna gögnum sem nýta má til vefmælinga, greininga og markaðssetningar.Með kökum getum við boðið upp á að síðan aðlagi sig að því tæki sem þú notar til að heimsækja þær.Í sumum tilfellum kunna kökur að safna upplýsingum eins og IP-tölum, gerð vafra eða gerð tækis. Sumar þessara upplýsinga geta talist persónuupplýsingar en nánar…

Continue ReadingStefna um notkun á kökum

Gott bókasafn – metnaðarmál allra sveitarfélaga

Sveitarfélögum ber að standa að þjónustu almenningsbókasafna.Það er greinilegt að löggjafinn telur afar mikilvægt að tryggja landsmönnum jafnt aðgengi að almenningsbókasöfnum landsins með lögum um almenningsbókasöfn.Í 1. grein laganna nr. 36/1997. segir m.a.:“ Allir landsmenn skulu eiga kost á að njóta þjónustu almenningsbókasafna. Er öllum sveitarfélögum skylt að standa að slíkri þjónustu í samræmi við þessi lög.”Treysti sveitarfélög sér ekki til að standa ein að rekstri almenningsbókasafns er þeim heimilt samkvæmt 3. grein laganna“að sameinast um rekstur”.Sveitarfélögum er einnig heimilt með ákveðnum skilyrðum samkvæmt 4. grein laganna að“sameina almenningsbókasafn og bókasafn grunnskóla”,.Slíkt er þó almennt ekki talið æskilegt nema í fámennari sveitarfélögum. Menningarmiðstöðvar og samkomustaður íbúannaLestrarfélögin gömlu, sem flest almenningsbókasöfn í dag byggja á, voru stofnuð af alþýðu fólks sem þyrsti í fróðleik og andlega skemmtan. Flest voru stofnuð kringum…

Continue ReadingGott bókasafn – metnaðarmál allra sveitarfélaga

Lesandinn í öndvegi

Nota á lesandann til að fá upplýsingar um bókina, ekki alltaf hafa höfundinn og bókina í aðalhlutverki heldur lesendur bókarinnar. Lesandinn í öndvegi. Hún nefndi líka að tengsl við höfund verksins væri ekki aðalatriðið og getur í mörgum tilfellum eyðilagt þau tengsl sem lesandinn hefur myndað við höfundinn í gegnum verk hans. Margir lesendur vilja heldur alls ekki þessi nánu tengsl. Rachel sýndi okkur fullt af bókamerkjum með slagorðum og renningum með lista yfir bækur t.d. um ákveðið efni. Books about people more misreable than me (bækur um fólk sem hefur það ver en ég), books to help me through illness (bækur til að hjálpa mér gegnum veikindi), books that make me smile, cry etc. (bækur sem fá mig til að brosa, gráta o.frv.) Lesendur hjálpa lesendum. Virkja lesendur t.d.…

Continue ReadingLesandinn í öndvegi

Skýrsla kynningarnefndar

Haustið 2007 tilnefndu Upplýsing og SFA, 6 félagsmenn í sameiginlega kynningarnefnd til að vinna að kynningu fyrir bókasöfn. Nefndarmenn voru: Barbara Guðnadóttir frá Bæjarbókasafni Ölfuss, formaður nefndarinnar, Hólmkell Hreinsson frá Amtsbókasafninu á Akureyri, Hrafnhildur Þorgeirsdóttir frá Upplýsingadeild Orkustofnunar, Kristín Ósk Hlynsdóttir frá Safndeild Ríkisútvarpsins, Marta Hildur Richter frá Bókasafni Mosfellsbæjar og Þóra Gylfadóttir frá Bókasafns- og upplýsingaþjónustu Háskólans í Reykjavík. Nefndin hefur hist reglulega á fundum, staðið fyrir könnun meðal starfsfólks bókasafna og verðlauna- samkeppni um nýtt slagorð fyrir bókasöfn. Nefndin kynnti slagorðið „Heilsulind hugans“ á Degi bókarinnar. Í kjölfarið vann hún með fagaðilum á almannatengslastofunni Athygli að mótun kynningarefnis og -átaks fyrir bókasöfn. Í skýrslunni verður greint frá starfi nefndarinnar, niðurstöðum úr könnunum og tillögum um kynningarátak. YFIRLIT YFIR STARF NEFNDARINNAR Skoðanakönnun Nefndinni var falið að skoða möguleika á…

Continue ReadingSkýrsla kynningarnefndar